Khloe Kardashian er komin með nýjan kærasta og það sem meira er; hann er tónlistarmaður eins og mágur hennar Kanye er.
Ekki virðast á allir eitt sáttir, en sá heppni gengur undir sviðsnafninu French Montana í hip-hop heiminum ytra og þykir einkar svalur, en Khloe, sem áður var gift íþróttamógúl er af mörgum talin hálfgerð boðflenna í tónlistarheiminum. Þannig hafa rétttrúnaðarmenn farið á hliðina yfir þeirri einföldu staðreynd að stúlkan sú arna prýðir umslagið á nýjustu smáskífu elskhugans:
[new_line]
[new_line]
En þar með er ekki öll sagan sögn, því Khloe leikur einnig í myndbandinu sem er eins og atriði úr hryllingsmynd og lætur sig ekki muna um að höndla lásboga, hríðskotabyssu og kemur fram í dulargervi með einkar ógeðfellda trúðsgrímu.
[new_line]
Khloe Kardashian sýnir á sér aðra og myrkari hlið í myndbandinu Dont Panic
[new_line]
Myndbandið, sem er ekki fyrir viðkvæma, var gefið út á Vevo fyrr í vikunni og skartar glæstu föruneyti í ógeðfelldum leik – en allt í plati, þau skella upp úr að lokum og í ljós kemur að um hrekk var að ræða.
Dæmi hver fyrir sig; hér má sjá Khloe Kardashian ásamt elskhuga sínum, French Montana:
[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”sVReXN2sFck”]
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.