Það er alltaf gaman að skoða falleg heimili og fá innblástur. Þessi dásamlega íbúð í sænsku borginni Malmö sem birtist á vef fasteignasölunnar Bjurfors fangaði athygli okkar, björt og falleg alveg eins og við viljum hafa það. Mikið af fallegri klassískri hönnun eins og Eames lounge chair og Hans Wegner borðstofustólar setja skemmtilegan svip á íbúðina. Leyfum myndunum að tala sínu máli.
Sjá einnig: Krúttleg lítil íbúð í miðborginni
Krossteppi Piu Wallén og bleiki Hay púðinn setja skemmtilegan svip á stofuna.
Túlípanar í vasa og Tom Ford bókin, mikil heimilisprýði.
Hans Wegner borðstofustólarnir eru flottir og gera mikið fyrir rýmið.
Skemmtileg hugmynd að náttborði og rúmfötin frá By Nord falleg.
Hugsað fyrir hverju smáatriði
Eames ruggustóll og Eames bird á myndinni.
Sjá einnig: Leigjendur greiða rúmlega 62 milljónir fyrir þessa íbúð á mánuði