Hin dásamlega Drusluganga verður farin að fjórða sinni í dag, þann 26 júlí og verður ekki einungis gengið í Reykjavík, heldur einnig á Akureyri og í Vestmannaeyjum í ár.
Druslugangan er orðin að föstum punkti í íslensku samfélagi þar sem að samfélagið rís upp gegn kynferðisofbeldi og stendur upp fyrir þolendum – gegn gerendum. Druslugangan leggur höfuðáherslu á að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur. Það er alltof oft þannig að einblínt er á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem afsökun fyrir kynferðisglæpi. Það er ekki til nein afsökun.
Á viðburðarsíðu göngunnar í Reykjavík er meðal annars að finna þennan upplýsingatexta:
Með Druslugöngunni viljum við færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur. Við viljum ekki einblína á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem afsökun fyrir kynferðisglæpi. Færum skömmina þar sem hún á heima!
Reykjavík: Gangan verður farin frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00, niður Skólavörðustíg, Bankastræti og mun enda á Austurvelli þar sem við taka fundarhöld og tónleikar. Nánari upplýsingar um gönguna í Reykjavík er að finna HÉR
Akureyri: Gangan verður farin frá Akureyrarkirkju klukkan 14:00, niður Gilið, Hafnarstræti og endar á Ráðhústorgi. Nánari upplýsingar um gönguna á Akureyri er að finna HÉR
Vestmannaeyjar: Gengið verður frá Boltanum neðst á Illugagötu kl. 14.00. Leiðin liggur um Hásteinsveg, Heiðarveg, Vesturveg og endað verður í Bárugötu. Þar verða fluttar ræður og boðið verður upp á tónlistaratriði. Nánari upplýsingar um gönguna í Vestmannaeyjum er að finna HÉR
Færum skömmina þangað sem hún á heima: Fjölmennum í Druslugöngu!
[youtube width=”620″ height=”300″ video_id=”3DKO5rr1y9c”]
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.