Jónsmessutónleikar DJ Margeirs í tilefni af útgáfu þriðja geisladisks Bláa Lónsins voru haldnir í vikunni ofan í lóninu og tókust með eindæmum vel. Nokkur dulúð sveif yfir vötnum þegar gufan steig upp frá lóninu um leið og magnaðir tónar bárust út í náttúruna. Högni átti tilkomumikla innkomu þegar kom hlaupandi meðfram lóninu og inn á sviðið, sem var komið fyrir nánast ofan í lóninu.
Ásamt Margeiri komu hljómsveitin Gluteus Maximus fram á tónleikunum ásamt Högna Egilssyni, Daníel Ágúst Haraldssyni og Ásdísi Maríu Viðarsdóttur. Einnig stigu á stokk Ólafur Arnalds og Janus úr Bloodgroup undir merkjum Kiasmos
Meðfylgjandi eru myndir frá viðburðinum sem um 700 manns sóttu en tónleikarnir hófust klukkan 22 og síðustu gestir kvöddu lónið um kl. 1 eftir miðnætti.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.