Um daginn var okkur fjölskyldunni boðið í matarboð, sem er ekki frásögu færandi nema þá að því leyti að allir áttu að koma með smá eftirrétt. Ekkert mál hugsaði ég… en gleymdi því svo 🙁 Þá voru góð ráð dýr, og það eina sem mér datt í hug er þessi dásamlega, en einfalda, eplakaka.
Hér er uppskriftin:
2 epli
1 bolli sykur
1 bolli hveiti
1 bolli smjör/smjörlíki
Smá kanilsykur
Eplin eru hýdd, skorin í mjög þunnar sneiðar og sett í botninn á eldföstu móti. Kanilsykri er stráð yfir eplin. Sykur, hveiti og smjör sett saman í skál og hnoðað saman með höndunum. Þegar allt er farið að loða saman er deiginu stráð yfir eplin og smá kanilsykri stráð yfir deigið.
Þeir sem vilja poppa kökuna aðeins upp, geta sett Nóa kropp, hnetur eða annað góðgæti ofan á. Sniðugt að setja smarties eða m&m fyrir þá sem vilja fá litadýrð
Bakað á 200°c í 30-40 mín
Berist fram með þeyttum rjóma eða ís.
Endilega prufið og verði ykkur að góðu.
Inga er fædd og uppalin í Reykjavík fyrir utan 2 ár sem hún bjó fyrir vestan í Bolungarvík. Þessi gifta, þriggja barna móðir er menntuð snyrtifræðingur og hefur unnið við það síðan 2006. Snyrtifræðin á stóran hluta af hug hennar og fagnaði hún þessu tækifæri að fá að skrifa greinar og jafnvel fá að aðstoða lesendur við vanda/spurningar sem þeir mögulega hafa.