Beatrice prinsessa skar óvart í andlit Ed Sheeran með sverði þegar hún var að skylmast við söngvarann James Blunt. Beatrice hélt boð og bauð þangað nokkrum frægum einstaklingum, en þar sem hún var að fíflast með James, varð kinnin á Ed óvart fyrir. Afleiðingarnar voru þær að ferja þurfti hann í skyndi á sjúkrahús til að gera að sári hans.
Sjá einnig: Ætli Ed Sheeran sé lofaður?
Ed mætti þó galvaskur aftur í veisluna, eins og ekkert hafði í skorist með sauma í kinninni. Beatrice varð afar um og ó eftir atvikið og var óhuggandi þar til Ed mætti aftur.
Ed hefur látið atvikið lítið á sig fá og ber hann vænt ör á kinninni fyrir vikið. Örið mátti bersýnilega sjá þegar söngvarinn söng á góðgerðarsamkomu fyrir barnaspítala sem haldið var í náttúruminjasafninu í London.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.