Aldur: 35
Hjúskaparstaða: Gift
Atvinna: Tónlistarkona
…
Hver var fyrsta atvinna þín? Ætli það hafi ekki verið barnapía þegar ég var 11 ára.
Hver er besta setning eða orðtak sem þú hefur heyrt? Allt er best í HOFI (á Akureyri)
Vefsíðan sem þú skoðar oftast? mbl.is og Facebook
Seinasta sms sem þú fékkst? “Freddie-raddæfing kl 21:00 í kvöld” frá Ölmu Rut söngkonu
Hundur eða köttur? Hvorugt! Þeir sem þekkja mig vita að ég er engin dýramanneskja, þess vegna var farið með mig í húsdýragarðinn þegar ég var gæsuð mér til mikillar ánægju, eða ekki
Ertu ástfangin? Algjörlega!
Hefurðu brotið lög? Já, hraðakstur tvisvar sinnum 🙂
Hefurðu grátið í brúðkaupi? uhhh, já oft
Hefurðu stolið einhverju? Jebb, stal sleikjó þegar ég var lítil
Ef þú gætir breytt einu úr fortíðinni hvað væri það? Hefði viljað halda áfram í píanónámi….annars er ég sátt
Hvernig sérðu þig fyrir þér þegar þú ert komin á eftirlaun? Ég er spennt fyrir að byrja að Golfa, þannig ætli ég verði ekki að Golfa á daginn, út að borða, leikhús eða tónleikar á kvöldin….ferðast síðan út um allt. Njóta ljúfa lífsins og leika vonandi við barnabörnin 🙂
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.