„Ég tala fjögur tungumál” – „Ég hef hannað og smíðað vélmenni” – „Ég er með háskólagráðu í líffræði frá háskólanum í West Virginia”.
Þessar áletranir og fleiri má lesa á einföldum pappaspjöldum í mögnuðu myndskeiði sem sýnir heimilislausa segja sögu sína í örfáum orðum, en myndbandið hér að neðan er hluti af beinskeyttri baráttuherferð sem mannúðarsamtökin Impact Homelessness í Orlando, Bandaríkjunum bera ábyrgð á.
Heimilislausir í Florida fylki eru samkvæmt opinberum tölum 47.862 manns og telja þannig 8% af heimilislausum í Bandaríkjunum öllum. Þá er Florida talið eitt hættulegasta fylki Bandaríkjanna fyrir heimilislaust fólk, en hatursglæpir gegn heimilislausum hafa margfaldast á undanförnum árum.
Hér má nálgast vefsíðu samtakanna en myndskeiðið þjónar öflugum tilgangi og minnir um leið á að aldrei skyldi dæma bókina eftir kápunni. Óhapp geta hent alla og enginn veit sína ævina fyrr en öll er:
[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”THxtcWNw3QA”]
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.