Hrefna Líf er 29 ára gömul og er að eigin sögn sjálflærð í hverju sem er á Youtube.
„Mig dreymir um að taka þátt í Youtube og vera meðlimur í Mið-Ísland og Hraðfréttum og langar að reyna koma mér á framfæri,“ segir Hrefna í samtali við Hún.is. Hún er um þessar mundir að læra líffræði í HÍ en mun svo hefja nám í dýralækningum á Spáni eftir 1 ár.
Aðaspurð um hvað hún gerir í frístundum sínum segir Hrefna: „Ég keyri leigubíl í frístundum til að safna fyrir bakpokaferðalögum en næsta ferð sem er á döfinni er um áramótin til Asíu.“
Hrefna er dugleg við að gera „snöpp“ með hundunum sínum en hún á tvo skemmtilega hunda sem heita Myrra og Frosti „Mér finnst bolabíturinn minn fyndnari en allir vinir mínir samanlagt en henni er alveg sama um mig. Hana langar bara að fá að borða og líf mitt á að snúast um hana,“ segir þessi hressa stúlka.
„Ég er manísk með meiru og elska að fanga mínar misgóðu hugmyndir á Snapchat.“
„Ég er „fabjúlös“ með meiru og hreinlega of skemmtileg til þess að vera ekki landsfræg. Svo er ég einstaklega kaldhæðin og leiðist aldrei með sjálfri mér,“ segir Hrefna Líf að lokum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.