Þessi mamma er rosaleg! Christina Litle (28) er komin 27 vikur á leið og hefur látið fólk taka andköf yfir hreyfingum sínum. Hún gengur nú með sitt þriðja barn og kennir dans í skóla í Kaliforníu.
Sjá einnig:Þessi mamma er með besta ,,pókerfeis“ allra tíma
Hún fékk margar athugasemdir við myndbandið sitt þar sem verið er að gagnrýna hana fyrir að dansa svona á meðgöngu en hún er fljót að svara fyrir sig. „Ég hef dansað alla ævi og það er FULLKOMLEGA öruggt að halda áfram að hreyfa sig á sama hátt, þrátt fyrir að vera ófrísk. Ég er ekki að skaða barnið…. Barnið er ekki að fá „Shaken Baby Syndrome“ og nei… barnið verður ekki sjóveikt.“
Christina segir líka að hún hafi haldið áfram að hreyfa sig á báðum fyrri meðgöngum og segir dæturnar báðar heilbrigðar og fullkomnar. „Ég er ófrísk…. ekki fötluð. Ég hvet allar konur til að halda sig á hreyfingu á meðgöngu….. það vinnur bara með þér og barninu þínu!“
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.