Ilmur Kristjánsdóttir leikkona dansaði 90´s dans við lagið Cotton Eye Joe og póstaði til vinkvenna sinna á Facebook: „Þetta var nú bara smá grín hjá okkur vinkonunum. Ég sendi henni Æsu vinkonu Scatman á afmælisdaginn hennar því við eigum fyndnar minningar með því lagi,“ segir Ilmur. „Hún birti svo myndband af sér og manninum sínum að dansa við það. Á afmælinu mínu 19.mars sendi hún mér Cotton Eyed Joe og ég varð auðvitað að svara í sömu mynt. Svo var þetta bara svo skemmtilegt eitthvað að úr varð þessi fíni leikur,“ segir Ilmur en fleiri vinkonur hafa bæst í hópinn og hafa Nína Dögg og Þórunn Erna Clausen sett inn myndbönd af sér dansa líka.
Hér er myndbandið hennar Ilmar þar sem hún dansar svo listilega vel
https://www.facebook.com/photo.php?v=10203707299590031&set=vb.1443969997&type=3&theater
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.