Eins og flestir Friends-aðdáendur vita komu vinirnir saman núna um helgina til þess að heiðra leikstjórann James Burrows. Matthew Perry var sá eini sem ekki gat verið á staðnum en hann var upptekinn við önnur verkefni. Orðrómur þess efnis að Courtney Cox og Matt LeBlanc eigi í ástarsambandi var ekki lengi að fara á flug en til þeirra sást eftir heiðurskvöldverðinn í nokkuð innilegum faðmlögum.
Sjá einnig: Hvað kom fyrir andlitið á Courtney Cox?
Fjölmiðlafulltrúi LeBlanc hefur þegar tjáð sig um málið og segir að einungis sé um vináttu að ræða.
Koss á milli vina?
Yfirgáfu Cox og LeBlanc kvöldverðinn saman?