Á föstudag og laugardag er Bulldog Hour á K-BAR frá klukkan 16:00-18:30. Kokteill helgarinnar að þessu sinni er Kim Jong Collins og á meðan Bulldog Hour varir kostar einn slíkur aðeins 990 krónur. Það er fátt betra en að sötra kokteil í góðu tómi svona í vikulok. Eiginlega alveg nauðsynlegt bara. Kim Jong Collins inniheldur meðal annars Bulldog gin, sítrónu, appelsínu og engifer.
Í samvinnu við K-BAR langar okkur, á hun.is, að bjóða þér að eiga notalega stund með maka þínum yfir ljúffengum kokteil. Settu ,,fjóra Kim Jong Collins, takk” í athugasemd hérna fyrir neðan og hver veit nema að þú gætir átt inni fjóra fría Kim Jong Collins um helgina. Við drögum fyrir hádegi á föstudag.
Það slær enginn höndinni á móti því, er það?
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.