Eiginkona hjartaknúsarans og fyrrum konutryllisins Tom Jones, Melinda Rose Woodward er látin 75 ára að aldri. Parið kynntist fyrst í Pontypridd þegar þau voru aðeins 12 ára gömul og voru þau gengin í hjónaband þegar þau voru 16 ára og hafa þau því verið gift í 59 ár.
Sjá einnig: Viðbrögð við greiningu krabbameins
Melinda hafði glímt við stutta en harða baráttu við krabbamein og þurfti söngvarinn að drífa sig heim frá tónleikum í Manila, en hafði þó lengi vel neitað að viðurkenna fyrir fjölmiðlum alvarleika veikinda hennar. Melinda hefur barist við krabbamein tvisvar sinnum áður og var hún mikil reykingamanneskja
Sjá einnig:10 ástæður fyrir því að það er gott að gifta sig
Þau eiga einn son saman, Mark (59) sem starfar sem umboðsmaður föður síns, en þrátt fyrir að Tom hafi gortað sig af því að hafa sængað hjá 250 konum eitt árið á hápunkti ferils síns, var hjónaband þeirra að hans eigin sögn grjót hart.
Hún er það mikilvægasta í mínu lífi.
Hún er ótrúleg kona. Linda er ástin í lífi mínu og er enn, þó að hún líti ekki út fyrir að vera það og ég ekki heldur, en ég reyni mitt besta.
Sjá einnig: Hann er með Alzheimer og búinn að vera giftur í 60 ár – Þetta er það fallegasta sem þú sérð í dag
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.