Það var stemning á toppi Esjunnar á dögunum þegar DJ Margeir & Ásdís María söngkona tróðu þar upp. Nova stóð fyrir viðburðinum og voru fjölmargir á staðnum að njóta tónanna, úti í guðs grænni náttúrunni.
Hljóðkerfið var flutt upp á Esjuna með þyrlu, sem og diskókúlan sem DJ Margeir plötusnúðast í.
Hér sést stemningin sem var skiljanlega alveg einstök.
[vimeo width=”600″ height=”400″ video_id=”102115405″]
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.