Lumar þú á gömlum skókössum inni í geymslu? Hér er sniðug hugmynd að einföldu föndri sem gaman er að dúllast aðeins í.
Það sem þú þarft er:
- Skókassi
- Auka karton fyrir hliðar
- Fallegur pappír
- Skæri
- Límband og límstift
Leiðbeiningar:
- Byrjað er á því að klippa stórt „V“ í miðjuna á kassanum eins og myndin sýnir efst til vinstri.
- Næst eru báðir endarnir brotnir saman með því að beygja þá niður á við.
- Límið endana saman með límbandinu
- Skellið auka kartoni á hliðarnar til að loka boxunum.
- Nú hefst skemmtilegi kaflinn: Klæddu boxið með fallegum pappa að eigin vali
Tilbúið!
Heimild: Amazinginteriordesign.com