Tæknilegar framfarir eru stöðugt að endurnýjast og ný hönnun að líta dagsins ljós. Sumt er hannað til að auðvelda okkur umstangið í eldhúsinu, annað er fyrir lítil rými.
Hvernig lýst þér á nýjustu uppfinningarnar? Er eitthvað af þessu komið til að vera?
Standur með hátalara fyrir iPadinn í eldhúsinu til að skoða uppskriftir.
Hönnun: Williams-Sonoma
Þægilegt statív sem þú getur hengt upp í eldhúsinu til að fylgjast með matreiðsluþáttum.
Hönnun: Belkin
Hér er snertitölvuskjár innbyggður í eldhúsinnréttinguna.
Hönnun: Toncelli
Þessi hönnun slær tvær flugur í einu höggi. Spanhella með innbyggðum snertiskjá.
Hönnun: Electrolux
Þessari eldavél er hægt að fjarstýra úr símanum ef erfitt reynist að standa upp! Hægt að stýra hitastigi með fleiru.
Hönnun: AGA
Spanhella sem hægt er að nota utandyra án rafmagnssnúru.
Hönnun: Two any One
Nú þarftu ekki lengur að vera ein í eldhúsinu. Með hologram-tækni geturðu boðið Gordon Ramsey eða Jamie Oliver heim í eldhúsið til að kenna þér að elda. Allavega ef þessi hugmynd í boði Electrolux nær að verða að veruleika.
Hönnun: Frumkvöðlakeppni Electrolux
Með þessari græju geturðu ofnbakað, grillað, steikt og soðið eins og vindurinn.
Hönnun: Fundið á YankoDesign
Turninn heldur matnum heitum.
Hönnun: Haimo Bao
Einfaldleiki í fyrirrúmi
Hönnun: Aslıhan Tokat
Ristavél sem fer lítið fyrir í eldhúsinu. Upphengd á veggnum.
Hönnun: Muzaffer
Nú þarftu ekki einu sinni að opna ísskápinn til þess að vita hvað er í honum. Með þessari nýjustu tækni getur ísskápurinn skannað innihaldið og látið þig vita ef eitthvað er útrunnið.
Hönnun: Fabian Kreuzer
Lítil þægileg spanhella sem hægt er að tengja við app í símanum til að stjórna hita.
Hönnun: Electrolux
Hér er hægt að rækta salad og grænmeti inni í eldhúsinu
Fundið á: Fancy
Mjólkurbrúsi sem lætur vita þegar mjólkin er að verða of gömul
Hönnun: Quirky
Með þessari nettu hönnun má rækta helstu kryddjurtirnar uppi á eldhúsbekk. Það eina sem þarf er vatn og fræ, enga mold, restin sér um sig sjálft.
Fundið á: Kickstarter .