Hver hefði haldið að söngkonan Ellw King væri dóttir stórleikarans og spéfuglsins Rob Schneider? Elle hefur notið sívaxandi vinsælda að undanförnu og var meðal annars tilnefnd til tveggja Grammy verðlauna þetta árið.
Ef þú ert dóttir frægs leikara og þú vilt leita frægðar fyrir þig sjálfa, getur þú annað hvort notað frægð foreldra þinna til þess að verða þér úti um sambönd, eða klifið metorðastigann ein.
Ég vildi vera ég sjálf, ég er ég. Ég tók upp nafn móður minnar vegna þess að ég vildi vera ég sjálf.
Rob Schneider eiganðist Elle með módelinu London King og gáfu þau dóttur sinni nafnið Tanner Elle Schneider. Elle fékk þó ekki innblásturinn í tónlistarbransanum frá föður sínum, heldur stjúpföður sínum, Justin Tesa.
Sjá einnig: Adele grét allan daginn eftir Grammy hátíðina
Sjá einnig: Þessi feðgin eiga sérstakt áhugamál – Myndir
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.