Söngkonan Celine Dion hefur ákveðið að lækka verðið á húsinu sínu sem er til sölu um 30 milljónir Bandaríkjadala en það eru rúmlega 3,9 milljarðar íslenskra króna.
Sjá einnig: Missti eiginmann sinn og bróður í sömu vikunni
Húsið er réttara sagt fasteignin, sem er staðsett á Júpíter eyjunni í Flórída, og hefur verið á sölu síðan árið 2013. Celina og eiginmaðurinn hennar René ákváðu að selja eignina stuttu eftir að René greindist með krabbamein.
Sjá einnig: Céline Dion tileinkar dauðvona eiginmanni sínum lag á tónleikunum sínum
Eftir að René lést hefur Celine sett ennþá meiri pressu á að selja fasteignina en hún vill einungis búa í Las Vegas.
Aðalhúsið sjálft er um 900 fermetrar en á landinu eru einnig tvö, fjögurra herbergja gestahús og sundlaugahús.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.