Hún hefur alltaf neitað fyrir það, en Amber Heard (30) er sögð hafa verið að hitta milljónamæringinn Elon Musk frá því hún hætti með eiginmanni sínum Johnny Depp.
Sjá einnig: Amber Heard hittir sína fyrrverandi kærustu
Sást til þeirra koma út af skemmtistaði fræga fólksins, The Box og virtust þau hafa verið að skemmta sér með módelinu Cara Delevigne og Jared Leto. Heimildarmenn segja þó að þau séu ekki par enn sem komið er, en orðrómurinn spratt upp eftir að þau fóru að eyða miklum tíma saman. Þau hafa verið vinir í nokkur ár, en Elon er að ganga í gegnum skilnað við seinni eiginkonu sína, leikkonuna Talulah Riley.
Amber stendur enn í ljótu skilnaðarferli við Johnny og hefur hún ásakað hann ítrekað fyrir að hafa gengið í skrokk á sér. Nýverið komu upp fleiri skilaboð á milli hennar og aðstoðarmanns Johnny þess efnis að hann hafði barið hana og sparkað reglulega.
Sjá einnig: Breytti flúrinu sem tileinkað var Amber Heard
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.