Nýjar upplýsingar hafa komist upp á yfirborðið um að Amber Heard telji sig í rauninni vera gift konu, eða öllu heldur alltaf talið sig vera gifta konu.
Sjá einnig: Johnny Depp lamdi Amber Heard
Konan sem um ræðir er fyrrverandi kærasta Amber, ljósmyndarinn Tasya Van Ree og talið er að Johnny hafi verið mjög afbrýðisamur út í samband þeirra tveggja. Á þeim tíma sem þær voru saman, gátu þær ekki gengið í lagalegt hjónaband, en Amber breytti þó eftirnafni sínu í Van Ree fyrir 8 árum til þess að komast sem næst því að vera kona hennar.
Johnny beitti Amber andlegu og líkamlegu ofbeldi á þeim tíma sem þau voru saman og átti hann til að láta hana finna fyrir því þegar hann var að drekka og nota eiturlyf. Hann niðurlægði hana, hótaði og var með mikla stjórnunaráráttu í hennar garð.
Johnny mætti ekki fyrir rétti vegna ákærunnar og var beiðni um nálgunarbann neitað.
Sjá einnig: Amber Heard og Johnny Depp skilja
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.