Fjölmiðlar hafa tekið eftir því að David og Victoria Beckham sjást æ sjaldnar saman. Síðast sáust hjónin saman opinberlega þegar þau fögnuðu eins árs afmæli hjá búðinni hennar Victoriu í London.
Sjá einnig: Victoria Beckham lætur fjarlægja húðflúr tileinkað David Beckham
Þegar parið yfirgaf teitið virtist Victoria hafa sullað yfir sig og var frekar ölvuð en David leit út fyrir að vera reiður.
Sögusagnir segja að þau hafi vaxið í sundur og séu bæði upptekin við að sinna sínum hlutum og vinnu. David og Victoria eru sögð vera að íhuga að flytja aftur til Los Angeles í Bandaríkjunum til að reyna að endurvekja hjónabandið.
Sjá einnig: Sonur David Beckham: Fær ekki frið fyrir æstum aðdáendum
Kunningi hjónanna segir að hjónaband þeirra sé og hafi alltaf verið umtalað. Það gangi á ýmsu í hjónabandinu líkt og hjá öðrum hjónum en þessa dagana virðist ekki ríkja mikil hamingja milli hjónanna. Victoria mætti í afmælið og var frekar ölvuð en David virtist afar stressaður.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.