Britney Spears og Iggy Azalea leiða saman hesta sína í nýju lagi sem ber nafnið Pretty Girls. Þær stöllur voru staddar í Los Angeles á fimmtudaginn við upptökur á myndbandi við lagið góða. Slúðurmiðlar hafa verið duglegir við að birta myndir af Britney, þar sem hún situr undir stýri í gulum jeppling. Ekki er það bíllinn eða Britney sem vekur sérstaka athygli, heldur buxurnar hennar og sú staðreynd að þær þykja frekar þröngar.
Rétt upp hönd sem er með rennisléttan maga þegar sest er undir stýri. Enginn? Nei, einmitt – ég hélt ekki.
Sjá einnig: Christina Aquilera leikur Britney Spears
Sjá einnig: Tískuslys vikunnar: Hárlengingar hrynja úr Britney Spears á sviði