Meðan Ísraelsþjóð og Palestíníumenn berjast á banaspjótum, Gazasvæðið bókstaflega logar af átökum og útlit er fyrir þjóðarmorð fari sem á horfir er eitt það stríð sem ísraelskir gyðingar í blóðugum baráttuhug hafa þegar tapað; samúð alþjóðasamfélagsins, auknum stuðning með málstað Palestínumanna og viðhorf þau sem endurspegla röddu hins almenna borgara á samfélagsmiðlum.
Þó ætlunin hér sé ekki að rekja deiluna sjálfa, sem hefur tekið á sig skelfilega mynd og er þyngri en tárum tekur að nefna, er athyglisverðast alls að sjá hversu mikla andúð gyðingar og arabar víða um heim virðast sjálfir hafa á úlfúð þjóðanna tveggja. Þannig hefur nú samfélagsmiðlaherferðin #arabsandjewsrefusetobeenemies vakið óskipta athygli og sér í lagi sú mynd sem hér má sjá:
Það voru þau Sulome Anderson, sem er hálf líbönsk og starfar sem blaðamaður og unnusti hennar, sem er gyðingur sem völdu að deila táknrænum kossi, sjálfu innsigli ástarinnar, á Facebook – en deilingin sem gerði þau fræg fyllti þau seinna meir ákveðinni skelfingu við alla athyglina sem hugdetta þeirra hlaut vegna grimmdarinnar í stigharðnandi deilum þjóðanna tveggja – en á spjaldinu sem þau halda á og bera á milli sín stendur einfaldlega:
Gyðingar og arabar neita að vera óvinir.
Sjálfri myndinni hefur verið deilt yfir 2000 sinnum á Twitter, en fréttamiðlar víðsvegar um heim hafa tekið málið upp á sína arma og fjallað um hugrakka parið sem stóð upp á móti ísraelsku ríkisstjórninni og setti fótinn í gólfið með einföldum kossi sem smellt var á mynd.
Myndbirtingin þykir einnig táknræn fyrir þá parta að hjónabönd einstaklinga af ólíkum trúarbrögðum mæta oft illvígum fordómum í alþjóðasamfélaginu – sér í lagi ef trúarlegar skoðanir beggja aðila þykja skarast á – út frá almennum sjónarmiðum. Fleiri hafa hins vegar fetað í fótspor Sulome og unnusta hennar í kjölfar upprunalegu myndbirtingarinnar eins og sjá má hér að neðan.
Annað par af ólíkum trúarbrögðum deildi þessari mynd í kjölfarið:
„Við erum fjölskylda – það finnast fleiri úrræði” stendur á spjaldinu.
Þessi ljósmynd birtist á Twitter með yfirskriftinni:
#jewsandarabsrefusetobeenemies
Samkynhneigt par frá Brooklyn, Bandaríkjunum lýsir yfir friði:
„Við deilum lífinu í friði – það er LÍKA lausn”
Áhugasamir um samfélagsmiðlaherferðina:
#arabsandjewsrefusetobeenemies
Smellið HÉR
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.