Það er nú bara þannig, að stundum eru kærastarnir lægri í loftinu en hávaxna og tignarlega kærastan. Sumum finnst það skrítin sjón af því að það fellur ekki í venjulega mótið, en satt best að segja skiptir lengdin á líkamanum engu máli þegar allt kemur til alls.
Sjá einnig: 8 útlitstengdir hlutir sem eiginmaðurinn eða kærastinn tekur ekki eftir!
En það er vissulega innstimplað í margar konur að ef þær eru hærri en herrann, líður þeim eins og tröllskessum og er það algjörlega burtséð frá því hversu glæsilegar þær eru. Aðrar leggja hælana á hilluna og kjósa að vera í flatbotna skóm, svo kærastinn fái ekki minnimáttarkennd.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.