Bubbi Morthens var pönkari af lífi og sál á 8. áratugnum og var t.d. í hljómsveitunum Utangarðsmönnum og GCD. Bubbi er alltaf sami töffarinn þó hann hafi mýkst með árunum. Við fengum Bubba í smá yfirheyrslu hjá okkur:
Fullt nafn: Ásbjörn Morthens
Aldur: 59 ára
Hjúskaparstaða: Giftur
Atvinna: Laga og textahöfundur. Skáld og rithöfundur.
…
Hvað ertu að gera þessa dagana? Er að fylgja eftir ljóðabók sem heitir „Öskraðu gat á myrkrið“. Er að fara taka upp plötu þar sem allir sem spila inn á hana, fyrir utan mig, eru konur.
Hver var fyrsta atvinna þín? Fyrsta atvinna mín var að grafa skurði 16 ára gamall.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Til dæmis appelsínur, epli, sódavatn, egg, Smjörva og smjör, skyr og ost.
Kíkirðu í baðskápana hjá fólki sem þú ert í heimsókn hjá? Nei ég læt skápana í friði hjá fólki.
Vandræðalegasta atvik sem þú hefur lent í? Vandræðaatvikin er svo mörg að ég nenni ekki að telja, trúðu mér, mörg!
Í hvernig klæðnaði líður þér best? Heima er ég mikið í bol og gallabuxum en mjög oft bara á nærbuxum.
Hefurðu komplexa? Komplexar mínur eru farnir með vindinum.
Hundur eða köttur? Bæði hund og kött takk fyrir.
Ertu ástfanginn? Já.
Hefurðu grátið í brúðkaupi? Ég hef fellt tár í brúðkaupum.
Hvernig sérðu þig fyrir þér þegar þú ert komin á eftirlaun? Ég mun aldrei fara á eftirlaun, til þess er ég of töff.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.