Eiginkona leikarans Ice-T, fyrirsætan Coco, á von á barni í byrjun desember. Coco var baksviðs á tónleikum hjá eiginmanni sínum í síðustu viku og náðust af henni myndir sem vakið hafa talsverða athygli. Coco er komin sjö mánuði á leið en óléttubumban þykir agnarsmá.
Sjá einnig: „Ég er svo smá þarna niðri“ – Coco hefur áhyggjur af fæðingunni
7 mánuðir – getur það verið?
Þessar myndir hafa vakið slíka athygli að Coco fann sig knúna til þess að bregðast við á Twitter:
Ég þarf ekki að sanna neitt fyrir neinum. Ég ,,stækka” einfaldlega hægt en örugglega. Bumban á eftir að taka kipp, sjáið bara til.
Kim Kardashian á líka að eiga í desember, hún er talsvert meiri um sig en Coco.