Nú hefur lögreglan á Miami gefið út þetta myndband sem sýnir Justin Bieber fara á salernið þegar verið var að loka hann inni í fangelsi eftir að stjarnan hafði keyrt undir áhrifum. Margir virðast halda að Justin sé alveg búinn að missa það því hann hefur verið mikið á milli tannanna á fólki seinustu mánuði fyrir vægast sagt neikvæða hegðun.
Justin hefur meðal annars verið staðinn að því að pissa í skúringarfötu á veitingastað, grýta eggjum í hús nágrannans, misnota hóstasaft og læknadóp, bíta í brjóstin á fatafellu og svo mætti lengi telja.
Eina sem við getum sagt er: Aumingja Justin!
Annað sem mætti svo deila um, er hvort það sé nú samkvæmt reglunum hjá lögreglunni að birta svona myndbönd opinberlega? Það er spurning!
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.