Hin 15 ára gamla Maya Henry virðist vera rosa heppin stúlka. Faðir hennar Thomast J Henry, sem er ríkur lögfræðingur, hélt fyrir hana rándýra afmælisveislu, eða Quinceanera, sem er veisla til að fagna því að stúlka hefur náð 15 ára aldri og þar með náð fullorðinsaldri.
Sjá einnig: Unglingar og partýhald
Afmælið kostaði föður hennar um 6 milljón dollara, enda voru skemmtiatriðin ekki af lakari kantinum. Pitbull og Nick Jonas stigu á svið, förðunarfræðingurinn Patrick Ta, sem hefur unnið með Kardashian fjölskyldunni, sá um förðunina og kjólar hennar voru sérstaklega hannaðir fyrir hana af fatahönnuðinum Rolando Sanana.
Sjá einnig: 13 unglingar sem verður að STOPPA strax!
Maya á 18.000 fylgjendur á Instagram, ferðast um í einkaþotu og tekur sjálfsmyndir af sér með fræga fólkinu. Faðir hennar er moldríkur eigandi eins af umfangsmesta tryggingafélagi Texas og voru foreldrar hennar afskaplega stoltir af því að geta veit dóttur sinni slíka veislu.
Öryggisgæsla var gríðarleg, enda voru þar 600 veislugestir og fengu þau lögreglufylgd þegar þau keyrðu upp að húsinu í Rolce Royce bílum sínum.
Sjá einnig: 102 ára gömul dúlluleg amma blæs á afmæliskertin og tennurnar fjúka!
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.