Svo virðist sem Jake Gyllenhaal (35) sé að hafa það afar gott í London þessa dagana. Jake hefur verið þekktur fyrir að hitta frægar leikkonur en nú er spurning hvort hann sé að gera hosur sínar grænar fyrir þessari dökkhærðu konu, sem enginn virðist vita hver er.
Sjá einnig:Óþekkjanlegur Jake Gyllenhaal
Þau gátu varla hætt að brosa á meðan þau töluðu saman en Taylor Swift mun eflaust ekki gera það sama. Jake og Taylor voru saman árið 2010 og sagan segir að hún hafði misst meydóm sinn með honum og hætti hann síðan með henni stuttu fyrir 21 árs afmælisdaginn hennar. Taylor samdi vitanlega lag um sambandsslitin og kallaði það The Moment I Knew, sem er á plötu hennar Red.
Vonandi er eitthvað gott að gerast í lífi Jake en hann er afar mikill hjartaknúsari í augum margra kvenna. Hann hefur farið með fjöldan allan af stórhlutverkum og vonast hann þessa dagana um að vinna til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Nocturnal Animals.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.