Flest eigum við allskonar en ekkert af okkur er eins, fyrir utan náttúrulega eineggja tvíbura, þeir komast kannski næst því.
Það er æði núna á veraldarvefnum að konur eru að deila mynd af því sem hefur verið kallað „frekna“, en samkvæmt okkar kokkabókum myndist kallast fæðingarblettur. Ástæðan fyrir því að margir eru að deila þessum myndum er að gríðarlega margar konur, úti um allan heim, eru með fæðingarblett á nákvæmlega þessum stað: Á miðjum úlnlið.
Það var kona sem heitir Aaryn Whitley sem hóf þessa umræðu á Twitter og ég rak augun í þetta og tékkaði á sjálfri mér. Auðvitað er ég ekkert einstök og er með svona fæðingarblett á báðum úlnliðum.
Þetta er allt frekar áhugavert og greinilegt að þetta á við um FJÖLMARGAR konur í heiminum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.