Samkvæmt slúðursíðunum RadarOnline er Portia de Rossi á barmi taugaáfalls, en hún og Ellen DeGeneres eru víst að skilja.
Heimildarmaðurinn sagði: „Þó þær séu reyna að neita fyrir þetta er nokkuð augljóst að þær eru ekki saman lengur.“
Portia sást tárvot í Hollywood þegar hún var að yfirgefa veitingastað en einnig sást til hennar þar sem bróðir hennar var að hugga hana úti á götu.
Nokkrir heimildarmenn hafa sagt RadarOnline að Portia hafi nýverið komist að því að Ellen hafi fest kaup á nýju heimili í Kaliforníu. „Fólk sem kom að þessum kaupum Ellenar var látið skrifa undir þagnareið sem kom í veg fyrir að þau gætu nokkuð sagt við Portia. Það þarf engan snilling til að átta sig á því að Ellen er að kaupa sér íbúð fyrir sig eina, sem hún mun flytja í þegar þær hafa gengið í gegnum skilnað,“ segir heimildarmaðurinn.
Sjá einnig: Ellen DeGeneres tekur senu úr 50 Shades Darker
Sagt er að Ellen hafi viljað ætleiða barn til að bjarga hjónabandinu þeirra en Portia hafi ekki viljað það. Eftir þetta sást Ellen nokkrum sinnum á ferðinni án giftingahringsins síns. Portia fór og dvaldi í nýlegu húsi þeirra hjóna í Beverly Hills á meðan Ellen sleikti sár sín í Kaliforníu.