Ofurfyrirsætan Kendall Jenner og One Direction hljómsveitarmeðlimurinn Harry Styles virðast vera að stinga saman nefjum aftur. Fyrst sást til parsins úti að borða saman á eyjunni Anguilla í Karabískahafinu en síðan náðu ljómyndarar slúðurblaðanna myndum af þeim á snekkju fyrir St. Barts.
Sjá einnig: Kendall Jenner sjóðandi heit í nýju myndbandi
Hin 20 ára Kendall og 21 árs gamli Harry voru að hittast árið 2013 en í það skipti varð lítið úr sambandinu og virtist það fjara fljótt út.
Ljósmyndirnar sem náðust af parinu sýna að þau skemmtu sér vel þessa síðustu viku á árinu.
Sjá einnig: Eru Kendall Jenner og Justin Bieber nýjasta parið?
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.