Lífrænt ræktað grænmeti er hollara en það sem ræktað er með hefðbundnum hætti, samkvæmt niðurstöðum umfangsmikillar rannsóknar sem gerð var í Bretlandi fyrir tilstuðlan Evrópusambandsins. Lífrænt ræktaða grænmetið reyndist almennt innihalda meira af andoxunarefnum og minna af fitusýrum.
Eru lífræn matvæli hollari en hefðbundin?
Það fer eftir því við hvern þú talar. Við athugun hefur komið í ljós að neysla á lífrænum afurðum í Bretlandi hefur aukist um 10% á síðasta ári. Ef fólk kaupir lífrænt af því að það heldur að það sé hollara, er þá ekki eitthvað sem getur staðfest að svo sé ?
Ef horft er til álits Matvælastofnunar Bretlands, UK Food Standards Agency (FSA), þá er enginn heilsusamlegur ávinningur af því að borða frekar lífrænt. “Að okkar mati hefur engin vísindaleg tilraun sýnt fram á það að lífræn matvæli séu öruggari né næringaríkari en matvæli framleidd með hefðbundnum aðferðum”, segir talsmaður FSA, John Krebs.
Þrátt fyrir þetta svar hefur fjöldi rannsókna sýnt fram á greinilegan mun á lífrænum matvælum og hefðbundnum.
Fyrir tveimur árum var gerð vísindaleg rannsókn á leifum skordýra- og illgresiseiturs í lífrænt ræktuðum plöntum. Rannsóknin sýndi að það væri sex sinnum líklegra að plöntur ræktaðar með hefðbundnum hætti innihéldi leifar skordýra- og illgresiseiturs. En þá er ekki hægt að segja hvaða áhrif slíkar leifar í matvælum hafa á heilsu fólks, en margir vísindamenn hafa áhyggjur af því. “Lífræn matvæli gefa neytandanum besta tækifærið til að forðast neyslu á slíkum efnum” segir Brian Baker hjá the Organic Materials Review Institute í Oregon og stjórnandi rannsóknarinnar.
“Að borða lífrænt þýðir líka að þú fáir meira af vítamínum og steinefnum í hverjum munnbita, sérstaklega vítamín C, magnesíum og járni. Bandarísk rannsókn frá árinu 2003 sýndi einnig að í lífrænum afurðum er að jafnaði meira af öllum þeim 21 næringarefnum sem mæld voru í rannsókninni”, sagði Gundula Azezz, forstöðumaður the Soil Association.
Þá hafa rannsóknir sýnt það að lífræn mjólk og kjöt hafa meira af lífsnauðsynlegum fitusýrum eins og ómega 3 og svo af fitusýrunni CLA (conjugated linolenic acid). Þessar fitusýrur eru taldar mikilvægar fyrir efnaskipti líkamans og geta verndað okkur gegn ýmsum læknisfræðilegum vandamálum.
“Það er erfitt að tína eitthvað það út sem sýnir að lífræn matvæli séu hollari, en að borða lífrænt kveður í kútinn þá óvissu sem fylgir því að borða fæðu sem inniheldur ónáttúruleg efni” segir Azezz.
Umhverfis- og heilsuáhrif lífrænna ræktunaraðferða
Miðvikudaginn 2. mars sl. hélt Dr. Carlo Leifert erindi í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri um umhverfis- og heilsufarsáhrif lífrænna ræktunaraðferða. Carlo þessi er verkefnisstjóri í gríðarstóru Evrópuverkefni um framangreint málefni og er óhætt að segja að í fyrirlestrinum hafi komið fram mikið magn áhugaverðra og jafnvel óvæntra tölulegra upplýsinga um málið. Fyrirlestur Carlos hefur nú, með góðfúslegu leyfi hans, verið settur inn á heimasíðu Lífrænnar miðstöðvar á Hvanneyri.
Lífrænar mjólkurafurðir
Lífrænar mjólkurafurðir innihalda mun meira af E-vítamíni, andoxunarefnum og ómega 3 fitusýrum en önnur mjólk samkvæmt nýjum rannsóknum.
Sem dæmi úr rannsóknunum má nefna að lífrænar mjólkuafurðir innihalda um 50% meira E-vítamín, 75% meira beta karótín og tvöfalt til þrefalt meira af andoxunarefnunum lutein og zeaxanthine en „hefðbundnar mjólkurafurðir“. (1) Einnig að lífrænar mjólkurafurðir innihalda mun meira af lífsnauðsynlegu fitusýrunum ómega 3. (2, 3)
Þetta kom fram á fyrirlestri sem Dr Carlo Leifert hélt í Landbúnaðarháskólanum að Hvanneyri þann 2. mars sl.
Dr Carlo Leifert er prófessor í vistfræðilegum landbúnaði við Newcastle háskóla í Bretlandi og er formaður verkefnastjórnar Evrópuverkefnisins Quality Low Input Food (QLIF).
Dr Carlo Leifert er í hópi fremstu og virtustu sérfræðinga í heiminum á sviði rannsókna á lífrænum ræktunaraðferðum og áhrifum þeirra á umhverfi okkar, matvælagæði og heilsufar.
1. Bergamo P et al, “Fat-soluble vitamin contents and fatty acid composition in organic and conventional Italian dairy products” Food Chemistry 82, (2003) 625 – 631
2. Robertson J & Fanning C, 2004, Omega 3 Polyunsaturated Fatty Acids in Organic and Conventional Milk (University of Aberdeen)
3. Dewhurst R J, Fisher W J, Tweed J K S and Wilkins R J (2003). Comparison of grass and legume silages for milk production. 1. Production responses with different levels of concentrate. Journal of Dairy Science (volume 86 pages 2598-2611)
Lífræn mjólk er auðugri af vítamínum
Rannsóknarstofnun landbúnaðararins í Danmörku (Danmarks JordbrugsForskning) hefur rannsakað innihald andoxunarefna og vítamína í lífrænni og hefðbundinni mjólk og sýndu þær rannsóknir að lífræn mjólk í níu af hverjum tíu sýnum inniheldur mun meira magn náttúrulegra E-vítamína en hefðbundin mjólk. Hefur það m.a. í för með sér að geymsluþol hennar er betra.
Auk þessa sýna rannsóknirnar að innihald carótenóíða er tvisvar til þrisvar sinnum hærra í lífrænni mjólk en hefðbundinni en það hefur áhrif á bragðið, því efnið á sinn þátt í að mynda ýmsa bragðþætti mjólkurinnar.
• Neytendur velja lífrænt meðal annars vegna þess að þeir telja að náttúrulegri framleiðsla gefi af sér hollari matvörur. Rannsóknin staðfestir þetta, segir Knud Erik Sörensen, formaður Lífrænu Landssamtakanna.
• Það vantar rannsóknir á hver munurinn er á lífrænni og hefðbundinni framleiðslu og við erum auðvitað ánægð með að núna komi rannsókn sem skjalfestir raunverulegan mun.
• Munurinn liggur í því að lífrænar kýr eru næstum eingöngu fóðraðar á smáraríku grasi og eða heyi og þeim beitt á gras en hefðbundnar kýr eru fóðraðar á sýrðu maísmjöli í miklum mæli og æ færri hefðbundnar kýr er beitt á gras.
• Það er mjög ánægjulegt að það sem er gott fyrir kýrnar er líka gott fyrir okkur mannfólkið sem drekkum mjólkina, segir Knud Erik Sörensen.
• Munurinn hefur líka reynst danskt sérkenni. Í mörgum evrópskum löndum eru lífrænar kýr fóðraðar að miklu leyti á maís. Þessi munur á örugglega sinn þátt í að styrkja samkeppnisstöðu framleiðslunnar í markaðssetningu erlendis. Í fyrsta lagi getum við nú skjalfest að hvaða leyti lífrænar mjólkurvörur eru hollari en þær hefðbundnu og í öðru lagi hafa vörurnar sérkenni í samanburði við samkeppnisaðila á Evrópumarkaði.
• Það eru rök sem vega þungt þegar kemur að því að markaðsetja lífræna danska framleiðslu erlendis, segir Line Duus, útflutningsráðgjafi Lífrænu Landssamtakanna.
Meira af andoxunarefnum
Ávextir og grænmeti sem ræktað er með lífrænum aðferðum innihalda mun meira af varnarefnum sem vinna gegn hjarta- og kransæðasjúkdómum og myndun krabbameins en matvæli ræktuð með hefðbundnum hætti, ef marka má nýja rannsókn á korni, jarðaberjum og brómberjum. Rannsakendur komust að því að meindýra- og illgresiseyðar hindra framleiðslu á phenolics- efnum í plöntum sem vinna eins og náttúrulegt varnarefni, en eru á sama tíma einnig góð fyrir heilsu okkar. Áburður án varnarefna virðist líka auka magn phenolics.
Þessar niðurstöður voru birtar í febrúar hefti tímaritsins “the Journal of Agricultural and Food Chemistry” sem er tímarit stærsta félags vísindamanna í heiminum “The American Chemical Society”.
Phenolic er flokkur efna sem inniheldur svokölluð flavonoids sem hafa sterka andoxunarvirkni. Plöntur innihalda mikið af þessum efnum til að vernda sig gegn skordýrum og plöntum sem eru í samkeppni við þær sjálfar, þ.e.a.s illgresi.
“Ef blaðlýs byrja að kroppa í blöðin byrjar plantan að framleiða phenolics til að vernda sig.” segir Alyson Mitchell, Ph.D.,vísindamaður við Kaliforníuháskóla. “Beiskt bragð og hrjúft yfirborð sem er afleiðing af miklu phenolic innihaldi í plöntum verndar plöntuna gegn þessum plágum.”
“Þarfir plöntunnar fyrir þessum náttúrlega verndara minnkar þegar notuð eru varnarefni í hefðbundnum landbúnaði. Því minna sem notað er af varnarefnum, því meira framleiðir plantan sjálf af andoxunarefni. Þetta skýrir það hvers vegna svo miklu meira er af þessum andoxunarefnum í lífrænum afurðum”, segir Mitchell.
“Þetta eru mjög áhugaverðar niðurstöður” segir Mitchell sem eftir þessa rannsókn hefur fengið persónulegan áhuga fyrir lífrænum matvælum. “Ég hef fundið út að þetta hátt hlutfall af andoxunarefnum getur haft afgerandi áhrif á heilsu okkar og hollustu matvæla og hefur gersamlega breytt því hvernig ég lít á matvæli.”
Rannsóknir sýna yfirburði lífrænna matvæla hvað varðar næringarinnihald
Nýlega var gefin út endurskoðuð samantekt af 41 rannsókn sem gerðar voru víðsvegar í heiminum þar sem gerður var samanburður á næringarinnihaldi í lífrænum matvælum annarsvegar og hefðbundnum hinsvegar og var helsta niðurstaðan sú að lífræn matvæli hafi yfirburðastöðu.
Þetta verkefni bar yfirskriftina “Nutritional Quality of Organic Versus Conventional Fruits, Vegetables, and Grains” og var stjórnað af Virginu Worthington ,M.S., Sc.D., C.N.S. og var fyrst gefið út í “The Journal Of Alternative And Complementary Medicine í apríl 2001.
Í samantekt um verkefnið segir m.a. “Við greiningu kom í ljós að meira var af járni, magnesíum, fosfór og C vítamíni í lífrænu matvælunum en í þeim hefðbundnu. Í sumum tilfellum mældist minna af próteini í lífrænu matvælunum en á móti kom að próteinið í þeim var meira að gæðum. Þá sýndu rannsóknirnar að þau höfðu meira af steinefnum (skoðuð voru 21) og minna af þungamálmum samanborið við þau hefðbundnu. Meiri rannsókna er þörf varðandi þessar niðurstöður til að sannreyna þær með tilliti til mismunandi verklags, plöntutegunda og jarðvegsgerðar, þar sem mikill breytileiki er á því hvernig að þeim málum hefur verið staðið. Af þeim sökum, fyrir flest næringarefnin, þarf að afla betri gagna áður en farið verður í nýjar rannsóknir. Að endingu er ljóst, þar sem þessi munur er svo greinilegur, að áframhald rannsókna er nauðsynleg til að kanna hugsanleg áhrif þessa mismunar á heilbrigði fólks.”
Í danskri rannsókn kom fram að matjurtir sem ræktaðar eru með lífrænum aðferðum innihalda meira magn næringarefna en aðrar matjurtir. Þær innihalda einnig meira af vítamínum og munj meira af náttúrulegum varnarefnum sem verja plönturnar fyrir sýkingum. Sum þessara efna eru einnig talin minnka líkur á krabbameini og hjartasjúkdómum í fólki.
Ítrekaðar rannsóknir gefa til kynna að lífræn matvara innihaldi meira af ýmisskonar næringarefnum og/eða snefilefnum en hefðbundin matvæli. Sem dæmi má taka rannsókn sem gerð var á ávöxtum, kartöflum, hveiti og korni. Rannsóknin stóð í tvö ár og voru tekin frá 4 og upp í 15 sýni úr hverjum hóp, þar sem skoðuð voru ákveðin næringarefni.
Í ljós kom að í lífrænu fæðunni var 63% hærra kalsíum, 78% hærra krómíum, 73% hærra járn, 118% hærra magnesíum, 178% hærra molybdenum, 91% hærra í fosfór, 125% hærra kalíum og 60% hærra zink. Lífræn fæða var hins vegar lægri í kvikasilfri eða 29%.
Fimm sinnum meira af CLA fitusýru
Rannsóknir hafa sýnt fram á að kýr sem eru fóðraðar á náttúrulegu fóðri, þ.e. ekki á kjarnfóðri (kornmeti), heldur eingöngu á gróffóðri eins og grasi eða heyi hafi allt að fimm sinnum meira af CLA (Conjugated Linoleic Acid ) fitusýrunni í mjólkinni, en CLA er talin vera ein besta krabbameinsvörn sem fundist hefur i matvælum fram að þessu. Í franskri rannsókn voru tekin sýni úr brjóstum 360 kvenna. Rannsóknin benti til þess að þær konur sem voru með hæsta gildi af CLA hefðu 74% minni líkur á brjóstakrabbameini en þær sem voru með lægsta gildið. Þær konur sem voru með hæsta gildið höfðu einnig mest af CLA í sinni fæðu. Til að minnka hættu á krabbameini í brjóstum og komast í þann flokk sem er í minnstri áhættu kvað þetta varðar þurfa því samkvæmt þessu eingöngu að skipta um neyslu á mjólkurvörum frá því að nota nýmjólk sem framleidd er með hefðbundnum aðferðum yfir í það að nota nýmjólk frá framleiðendum sem eingöngu fóðra með gróffóðri (grasi eða hey).
Það eru fleiri atriði heldur en aukið innihald á CLA fitusýrunni sem gera lífræna mjólk framleidda án kjarnfóðurs að eftirsóttum valkost. Rannsóknir hafa sýnt að í mjólk eru bæði ómega 3 og ómega 6 fitusýrur. Báðar þessar fitusýrur eru okkur lífsnauðsynlegar. Heppilegast er að neysla á þessum fitusýrurum séu í jafnvægi, þ.e.a.s. að jafn mikið sé af hvorri sýru. Í slíku jafnvægi hafur verið sýnt að þær hafa mikinn forvarnareiginleika gagnvart hjarta- og æðasjúkdómum, offitu, sykursýki, ofnæmi og sjálfsofnæmi, krabbameini og gegn ofvirkni og ýmsum öðrum geðrænum vandamálum.
Greinin er birt með góðfúslegu leyfi Heilsufrelsi.is
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.