Josh Marshall á skilið medalíu fyrir að vera einn hugulsamasti faðir samfélagsmiðla í dag. Hann birti mynd á facebook síðu sinni af sér og syni sínum, sem hefur nýlega gengið í gegnum aðgerð á höfði vegna krabbameins og hefur myndin þotið um eins og eldur um sinu síðustu daga.
Það sem vakti einna mestu athygli var að faðirinn fékk sér húðflúr í stíl við það ör sem sonurinn hlaut eftir uppskurðinn.
Gabriel Marshall var greindur með heilaæxli í mars árið 2015, en til mikillar lukku náðist að koma í veg fyrir að verr færi og eru nú eftirmálarnir aðeins gríðarstórt ör á höfði drengsins.
Sjá einnig: Lítil stúlka með krabbamein syngur ,,Let It Go“
Ég myndi vilja þakka öllum sem hjálpuðu mér að láta þetta gerast. Það er heiður að vera titlaður #BestBaldDad 2016 en sannleikurinn er sá að ég er engu betri en nokkur annar keppandi í þessari keppni. Við erum allir frábærir feður sem myndu ganga alla leið til að hjálpa börnunum sínum, svo í mínum augum erum við allir sigurvegarar.
Sjá einnig: 4 ára syngur fyrir mömmu sína sem berst við krabbamein
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.