Hárvörurnar Rock your hair koma frá LA en það var hinn þekkti hársnyrtir Michael O’Rourke sem hannaði vörurnar. Vörurnar eru paraben- og súlfatfríar! Vörurnar eru allar hannaðar til þess að hárið fái meiri lyftingu/fyllingu (volume).
Bombshell
Bombshell er duft sem lyftir hárinu. Það gefur hárinu meira volume og þykkir það án þess að byggjast upp. Hægt að nota sem mótunarefni líka!
Size matters
Sprey hárfroðan – gefur mikið volume! Sprautast beint úr brúsanum í rótina, gefur hárinu mikið loft án þess að þyngja endana. Inniheldur raka formúlu sem verndar hárið frá því að verða þurrt og brothætt.
Leave-in conditioner
Flækjuspreyið/Flókavörnin er fyrir allar hárgerðir. Í henni er hitavörn, meiri gljái og hárið verður sterkara og heilbrigðara. Inniheldur soyja-, hveiti- og hafraprótein sem styrkir hárið. Gefur þurru og efnameðhöndluðu hári aukinn gljáa.
Þú getur lesið um fleiri vörur frá þeim á Facebook síðu þeirra en þessar vörur virka alveg stórkostlega vel og það sakar ekki hvað þær eru flottar líka.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.