Ljósmyndarinn Christian Berthelot tekur myndir af nýfæddum börnum. Ekki litlum píslum sem kæfa okkur með krúttlegheitum, rúllandi um á hvítri gæru. Nei, þvert á móti. Christian vill hafa myndir sínar hráar, sýna börnin eins og þau eru þegar þau koma í heiminn. Nakin, öskrandi og löðrandi í hinum ýmsu líkamsvessum.
Myndirnar tekur Christian 3-18 sekúndum eftir að börnin hafa yfirgefið móðurkvið. Þessar ljósmyndir eru úr seríu eftir Berthelot sem heitir Cesar, eins og nafnið gefur til kynna voru öll börnin á myndunum tekin með keisaraskurði.
Tengdar greinar:
13 stórkostlegar myndir af fæðingum
Feðrabókin: Dásamleg viðbrögð feðra við fæðingu barna sinna
Nýfæddir tvíburar telja sig vera í móðurkviði í sinni fyrstu baðferð
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.