Allar einhleypar þarna úti! Þessi gaur gæti sett hring á fingur þér svo stóran að þú gætir ekki lyft honum!
Don Milisav Juan Gonzales Brzi er serbneskur piparsveinn sem ákvað að finna ástina í lífi sínu með því að sýna auð sinn…..sem er fáránlegur!! Og við erum ekki að tala um örfáar kristallsljósakrónur.
Skv. netinu er hann 39 ára, býr í Pétursborg og er að leita að ungri stelpu 16-20 ára til að giftast. Svona lýsir Don sjálfum sér: “Til allra ógiftra kvenna sem langar að eyða lífinu mér við hlið á mínu fallega heimili. Skoðið meðfylgjandi myndir af heimili mínu sem ég innréttaði af smekk, kannski akkúrat fyrir þig?”.
Áhugasamar endilega tékkið á Don, en eitthvað er kappinn lítt glaðlegur að sjá þrátt fyrir allan þennan auð.
En vonandi finnur hann einhverja sem fær hann til að brosa.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.