Febrúar er stútfullur af verðlaunahátíðum, fallegum kjólum og almennum fínheitum. Það eru þó alltaf fáeinir einstaklingar sem hrista aðeins upp í hlutunum – enda væri lífið fremur dapurlegt ef við værum öll eins.
The Daily Star tók saman lista yfir þá sem syntu örlítið á móti straumnum þennan febrúarmánuðinn:
Hin 56 ára gamla Madonna var óhrædd við að sýna heimsbyggðinni bossann á Grammy-verðlaunahátíðinni.
Rita Ora vann kannski ekki Óskarinn í ár, en vakti engu að síður gríðarlega athygli þegar hún mætti í partýið hjá Vanity Fair að lokinni verðlaunahátíð. Annar ber bossi beint í æð og lítið skilið eftir fyrir ímyndunaraflið.
Joy Willa á Grammy´s. Dress sem enginn skildi. Eða skilur ennþá.
Sofia Hayat mætti í þessum kjól á frumsýningu The Second Best Exotic Marigold Hotel – þar sem kóngafólk var á meðal gesta. Æ, það ber heldur enginn latex eins og Kim Kardashian gerir.
Hin svokölluðu hliðarbrjóst (sideboob) hafa verið að ryðja sér til rúms undanfarið. Sumir taka hugmyndina þó aðeins of langt. Það munar litlu að þarna sé bara heilt brjóst – ekkert hliðarbrjóst neitt.
Amy Adams í afar óklæðilegri dragt að lokinni Bafta-verðlaunahátíðinni.
Breska söngkonan Mica Levi á Bafta – já, fæst orð bera minnsta ábyrgð.
Hofit Gola í afar undarlegu gulu dressi á Bafta.
Charlotte McKinney í samfesting. Sem er dálítið opinn á bringunni. Dálítið mikið.
Söngkonan Neon Hitch – fremur skrautleg svo ekki sé meira sagt.
Tengdar greinar:
Þessar voru best klæddar að mati Vogue
10 dýrustu kjólarnir sem sést hafa á Óskarsverðlaunahátíðinni
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.