Þessi æðislega eign er við Fáfnisnes og er á hornlóð í Skerjafirðinum. Húsið var innréttað í upphafa 8. áratugarins og hefur haldið upprunalegum stíl m.a. með einstaklega fallegum tekk-þiljum á hluta veggja í stofum, innihurðum og skápum.
Húsið skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol, eldhús, opnar stofur, 3 svefnherbergi, sjónvarspsstofu, þvottahúsi, 3 geymslur, gufubað og 2 baðherbergi.
Forstofu með flísalögð með fallegum tekk-fataskápum, inn af forstofu er lítil gestasnyrting með glugga. Stofur og hol með fallegum arni mynda skemmtilega notalegt rými nálægt eldhúsinu.
Stofur eru í bjartar með miklum gluggum og hurð út í garð (suður) – samliggjandi er setustofa og borðstofa. Eldhús var endurnýjað árið 2007 með fallegri hvítri innréttingu og góður borðkrókur er í eldhúsi.
Í húsinu eru 3 rúmgóð svefnherbergi og eru þau öll með fataherbergi inn af. Innsta herbergið er hjónaherbergi með svalir í austur. Baðherbergi er á hæðinni (næst hjónaherbergi) með sér sturtuklefa, baðkari og upprunalegri innréttingu.
Á neðstu hæðinni er stór sjónvarpsstofa eða hobby-herbergi, inn af því er baðherbergi með sturtuklefa og sauna-herbergi. Þvottahús með innréttingu og þvottavél/þurrkara í vinnuhæð og vask og lítilli innréttingu, hurð er á þvottahúsi út í garð. Geymslur eru 3 í röð, allar með gluggum. Hitakompa er rúmgóð og nýtist sem geymslurými. Þetta svæði bíður upp á ýmsa möguleika.
Bílskúrinn er rúmgóður (38 fm.) tekur tvo bíla í hýsingu, innst í bílskúrnum eru hillur. Rafmagn, og kalt vatn er í bílskúrnum.
Allar frekari upplysingar veitir Þóra 777-2882 og thora@fastborg.is
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.