Í dag kl 17 verður haldinn fatamarkaður í Bókasafni Kópavogs. Allir básar hafa verið pantaðir og er búist við margmenni á svæðinu. Meðal þeirra sem ætla að mæta eru nokkrar dömur sem hafa gert það gott á samfélagsmiðlum.
Ein af þeim sem ætlar að mæta er Kristín Rún Sævarsdóttir en hún er með bloggið www.kristinrun89.com.
„Ég er búin að setja í poka og töskur, er með heilan helling, enda hef ég mjög mikinn áhuga á tísku. Fer mjög reglulega í gegnum fataskápinn hjá mér og skipti út fötunum,“ sagði Kristín. „Annars er ég lærður förðunarfræðingur og aldrei að vita nema að ég komi með einhverjar snyrtivörur ef það má.“
Kristín er með Snapchat: kristinrun89
Jóna María Ólafsdóttir förðunarbloggari ætlar að mæta en hún er að flytja erlendis og þarf að losa sig við föt:
„Er með mjög mikið af fötum og verð líka með eitthvað af makeup-i á klink verði. Ég ætla að halda á vit ævintýranna í Brighton í haust og þarf þar af leiðandi að losa mig við mikið af fötum.“
Jóna María er með Snapchat: jonamarimakeup
Sylvía Rut, ritstýra Bleikt.is ætlar að mæta líka með föt frá sér:
„Ég er að flytja í sumar og ætla því að nýta þetta tækifæri til þess að skipuleggja fataskápinn minn betur. Ætla að selja á markaðnum föt sem ég tel mig ekki þurfa eða hef aldrei notað og gef svo slatta í Rauða krossinn líka.“
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.