“Þetta byrjaði allt með mynd í kollinum á mér af fugli á grein sem var tilbúinn að taka flugið” greinir Trine Anderson frá á heimasíðu fyrirtækis hennar Ferm living sem hefur notið mikillar velgengni undanfarið og er í dag eitt af stóru hönnunarfyrirtækjum í Skandinavíu. Höfuðstöðvarnar eru í Danmörku þar sem Trine er fædd og uppalin en fyrirtækið hefur teygt anga sína um gjörvalla Skandinavíu og Evrópu.
Geometrísk form og hreinar línur á anda retro eru aðalsmerki Ferm living. Hér fyrir neðan er hægt að skoða hluta af haust- og vetrarlínu fyrirtækisins. Fyrir þá sem áhuga hafa á að skoða línuna í heild sinni er bent á netútgáfu af kynningarbækling HÉR.
Ljósmyndir: fermliving.com
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.