Það eru pottþétt ekki allar konur sem skarta líkama eins og þessum þegar þær eru orðnar 50 ára gamlar, en hún gerir það með stæl!
Demi Moore dvelur nú í Mexíkó á heilsuhæli þar sem dögunum er eytt á sundfötunum í jóga, zúmba, lyftingar, hugleiðslu og sólböð. Ekki slæmt það. Þeir sem séð hafa til hennar á svæðinu segja að hún sé mjög hress og mannblendin og hafi meira að segja daðrað við einn 17 ára. Seljum það ekki dýrara en við keyptum það samt.