Kim Kardashian er ekki sátt við rassinn sinn, sem hún er svo þekkt fyrir. Henni finnst hann vera of stór og of linur.
Heimildarmaður RadarOnline sagði: „Kim hefur verið mjög meðvituð um sjálfa sig og útlit sitt síðan myndir af henni í Mexíkó voru birtar á netinu. Þar sást í appelsínuhúð og það fór alveg með hana. Hún stendur klukkutímum saman fyrir framan spegilinn og gagnrýnir sjálfa sig.“
Kim gengur alltaf í aðhaldsbuxum og ef hún á ekki nóg af þeim verður hún brjáluð, að sögn þessa heimildarmanns.