Frábær fiskibollu uppskrift frá http://allskonar.is
Þetta er uppáhaldsfiskibollu uppskriftin mín, í hana geturðu notað þann fisk sem þér finnst bestur hvort sem það er hvítur eða bleikur fiskur.
Ég nota heil flök og set þau í matvinnsluvélina í 2-3 sekúndur, ekki of lengi til að hakka fiskinn ekki of mikið. Þú getur líka hakkað hann með því að saxa hann með hníf.
Uppskrift:
- 1 rautt chili, frænhreinsað
- 2 skallottulaukar
- 2 vorlaukar
- 2 flök fiskur
- 75gr brauðmylsna
- safi úr 1/2 sítrónu
- 2 msk grísk jógúrt
- handfylli fersk steinselja
- 5-8 lauf fersk basilikka
- salt og pipar
- 3 msk olía
Undirbúningur: 10 mínútur
Kæling: 30-40 mínútur
Eldunartími: 20 mínútur
Aðferð:
Byrjaðu á að setja í matvinnsluvél skallottulaukinn, vorlaukinn og chili. Hakkaðu vel. Settu í stóra skál.
Hakkaðu núna fiskinn í matvinnsluvélinni, eða fínsaxar með hníf. Athugaðu að hakka ekki of mikið til að missa ekki áferðina í fisknum. Settu út í stóru skálina með lauknum.
Bættu nú brauðmylsnunni saman við ásamt kryddjurtunum, grískri jógúrt, sítrónusafa og salti og pipar. Hrærðu vel saman.
Kældu í ísskáp í amk 30 mínútur. Því lengur sem deigið er kælt, því
auðveldara verður að móta úr því bollur og þær halda sér frekar heilar á
pönnunni.
Steiktu bollurnar í olíu á heitri pönnu þannig að þær brúnist vel.
Berðu fram með salati og kartöflum.