Nú eru 10 ár liðin frá andláti konungs poppsins, Michael Jackson, og fjölskyldan hefur þjáðst allar götur síðan. Eins og flestir vita fannst Michael Jackson látinn á heimili sínu í Suður Kaliforníu 25. júní 2009. Hann lést vegna of stórs lyfjaskammtar.
Í samtali sem RadarOnline átti við náinn vin fjölskyldunnar segir meðal annars að áhrif andlátsins hafi tekið mikinn toll af öllum fjölskyldumeðlimum.
Ef Michael vissi hvað fjölskyldan hans ætti erfitt myndi hann vera eyðilagður maður og gjörsamlega miður sín. Börnin hans og fjölskyldan hans var það mikilvægasta í hans lífi. Fólkið hans var eina tenging hans við aðrar manneskjur. Í heimi sem Michael treysti ekki og hræddist stundum, þá var fjölskyldan líflína hans og hélt honum gangandi,
segir heimildarmaður RadarOnline.
Sem fyrr segir hefur fjölskyldan gengið í gegnum mikla erfiðleika seinustu 10 ár. Faðir Michael, Joe, er látinn og dóttir Michael, Paris, hefur glímt við áfengis- og fíkniefnavanda og hefur reynt að taka eigið líf.
Móðir Michael, Katherine (89), sagði í einhverju viðtali að þegar hún hafi misst Michael hafi hún misst allt. Þeir sem þekkja til fjölskyldunnar segja að hún hafi aldrei orðið söm eftir andlát Michael:
Hún brosir og hlær sjaldan, en áður var hún þekkt fyrir hlýja persónuleika sinn. Það er eins og gleðin í sálin hennar sé farin,
Yngsta systir Michael, Janet Jackson, hefur átt mjög erfitt eftir að Michael dó:
Janet féll í djúpt þunglyndi. Sorg hennar kom út á þann veg að hún fór að borða óhollt og berjast við viktina. Árið 2012 giftist Janet milljarðamæringnum Wissam Al Mana og eignaðist hún barn með honum þegar hún var 50 ára. Eftir það fór hjónabandið í hundana og segja þeir sem til þekkja að þunglyndi Janet hafi spilað þar inní.
Elsti sonur Michael, Prince (22), útskrifaðist nýlega úr framhaldsskóla og er á réttri braut samkvæmt heimildarmanni.
Prince hagaði sér illa því hann hafði ekki leiðsögn foreldris. Hann hefur eytt um efni fram og skemmt sér mikið. Líf hans hefur ekki verið mjög eðlilegt og aðstandendur hans haft áhyggjur af framtíð hans. Það var ekki fyrr en hann útskrifaðist um daginn sem hann virðist vera á réttri leið.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.