Það er eftirvænting sem fylgir því á hverju ári að Pirelli dagatalið komi út. Það hefur verið til í 50 ár og konur eins og Kate Moss, Joan Smalls, Christy Turlington, Naomi Campbell og Lara Stones hafa fækkað fötum fyrir dagatalið.
Erfitt mun að koma höndum yfir sjálft Pirelli dagatalið, ef þá ekki nær ógerlegt, en enginn veit hverjir eða hversu margir fá dagatalið að gjöf á hverju ári.
Sjá einnig: Pirelli: Svona lítur SEXÍ út árið 2015
Dagatalið fyrir árið 2016 verður aðeins frábrugðið þeim sem áður hefur komið en konurnar verða flestar í fötum og ekki í kynþokkaföllum stellingum.
Það er athyglisverð blanda af konum í þessu dagatali, allt frá íþróttastjörnum til Hollywood-stjarna. Ljósmyndarinn sem tók myndirnar fyrir dagatalið er Annie Lebowitz.
Hér fyrir neðan má sjá myndirnar úr dagatalinu fyrir árið 2016, hvernig lýst þér á?
Janúar, Natalia Vodianova
Febrúar, Kathleen Kennedy
Mars, Agnes Gund, t.h og Sadie Rain Hope-Gund
Sjá einnig: Latex, lífstykki og leður: Pirelli 2015 óður til 50 Grárra Skugga
Apríl, Serena Williams
Maí, Fran Lebowitz
Júní, Mellody Hobson
Sjá einnig: Logandi heitt lag úr kvikmyndinni 50 Shades of Grey
Júlí, Ava Duvernay
Ágúst, Tavi Gevinson
September, Shirin Neshat
Október, Yoko Ono
Nóvember, Patti Smith
Desember, Amy Schumer
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.