Ofurfyrirsætan Miranda Kerr er á forsíðu ástralska Vogue í apríltölublaði þeirra. Blaðið kom út aðeins nokkrum dögum eftir að Miranda lenti í árekstri í Los Angeles en hún var flutt á spítala eftir atvikið.
Miranda var þó fljót að jafna sig og farin að vinna fljótt aftur enda á hún svo góðan mann en Orlando Bloom sér víst einstaklega vel um konuna sína að sögn þeirra sem til þekkja.