Óskarsverðlaunin voru afhent í nótt í 86. skipti en myndirnar Gravity og 12 Years A Slave stóðu uppi sem sigurvegarar. Gravity vann til alls 7 verðlauna en 12 Years A Slave tók heim helstu verðlaunin fyrir bestu kvikmyndina.
Kynnir kvöldsins var leikkonan og spjallþáttastjórnandinn Ellen Degeneres en hún þótti standa sig frábærlega þar sem hún uppskar mörg hlátrasköllinn.
Hápunktur kvöldsins hjá erlendum fréttamiðlum var þó ekki einungis verðlauna afhendingin sjálf því mikið er spekúlerað ár hvert í klæðnaði stjarnanna á rauða dreglinum.
Hér eru myndir af kjólunum sem þóttu fallegastir á rauða dreglinum í ár.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.