Fyrrum Baywatch stjarnan Nicole Eggert fór í brjóstastækkun vegna þess að Pamela Anderson lét hana líða óörugga með sig. Eitt skiptið þegar Strandverðir voru í fríi frá tökum ákvað Nicole að fara og fá sér sílíkonbrjóst var þá talið að hún væri óörugg vegna þess að hún væri svo flatbrjósta og fannst hún verða að keppast svolítið við Pamelu.
Sjá einnig: David Hasselhoff hefur engu gleymt
Nicole notaði þetta stutta frí frá tökum til að fá sér brjóst, en það skapaði vandræði á tökustað vegna þess að leikstjórinn hafði þá þegar tekið upp nokkur atriði með henni flatbrjósta.
David Hasselhoff hafði áhyggjur af því að fá Pamelu til að vera með í þáttunum vegna fortíðar hennar hjá Playboy og að hún myndi kasta skugga á aðra leikara þáttanna, sem síðan gerðist að vissu leiti.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.